miðvikudagur, júlí 26, 2006

27. Júlí 2005

Með allt uppá bak.



27. júlí 2006

Með c.a. jafn mikið upp á bak.



Engin sérstök plön en væntanlega verður kíkt inná einn píanóbar eða svo um helgina og drukkið/sungið frá sér allt vit.

sunnudagur, júlí 23, 2006

Pearl Jam at the Gorge


Snilldarferð og Tan-Tumi naut sín vel með góðum félögum í 40°C hita.

sunnudagur, júlí 16, 2006

Jæja, þá er loksins búið að velja í enska landsliðið og tími til kominn að fá kallið. Ekki laust við að skipulagning myndatöku hefði getað verið betri, allavegna rugl að setja stærsta og stirðasta leikmanninn í miðröðina enda er maður eins og fífl.
4-0 sigur á Svíþjóð og 2-0 sigur á Póllandi voru úrslit gærdagsins og í dag vannst sigur á Úkraínu 6-1 en Shevchenko var reyndar meiddur og munar um minna.


Næstu helgi er svo förinni heitið aftur í "The Gorge" þar sem Pearl Jam munu trylla lýðinn. Uppselt á tónleikana og gefið dæmi að þetta verður snilld með tjaldi, borgurum, bjór, frisbí og svo auðvitað tónleikarnir.


Að lokum var svakalegt djamm hjá fótboltaliðinu á föstudaginn og var viðverustaðurinn píanóbarinn "Chopstix". Skemmst frá því að segja að þessi bar var hannaður fyrir söngelska/falska gaura eins og mig sem kunna textana við slagarana þótt ég sé nú þess utan ekki sérlega fróður um tónlist. Myndir af liðsfélögum og frúm hér að neðan.

Þennan þarf ekki að kynna fyrir aðdáendum síðunnar.

John með sinni (innsk. fyrir Abel, hún heitir Coleen) og við Mary Frances í góðum fíling.

Todd og Kristina

Alex og Tina

Patrick og Ieva.

Jeremy og Seene sem við höngum hvað mest með.

mánudagur, júlí 10, 2006

Besti knattspyrnumaður allra tíma að mínu mati. Efast um að jafn alhliða leikmaður og hann er komi fram á næstu árum. Vald á boltanum, tækni, yfirferð og yfirnáttúruleg sendingargeta eru meðal þess sem gera það að verkum að það er frábært að horfa á hann spila. Verðlaunaskápurinn er stútfullur og þar væri einn gullpeningur í viðbót hefði skallinn hjá honum endað í markinu eins og átti auðvitað að gerast.