sunnudagur, febrúar 26, 2006

Félagi minn í Sporting FC er víst e-ð að prufa sig áfram í tónlistarheiminum og stefnir á að gefa út sólóplötu á þessu ári. Á þessari síðu eru þrjú lög með honum og finnst mér lagið "Maybe Yes" mjög flott. Endilega check-ið á þessu og látið mig vita hvað ykkur finnst.

myspace.com/richard

þriðjudagur, febrúar 21, 2006

Jæja, það er aldrei að vita

You scored as Engineering. You should be an Engineering major!

Engineering

58%

Journalism

58%

Linguistics

50%

Theater

50%

Philosophy

42%

Mathematics

42%

Dance

42%

Biology

33%

Psychology

33%

Anthropology

33%

Sociology

25%

English

25%

Art

17%

Chemistry

8%

What is your Perfect Major? (PLEASE RATE ME!!<3)
created with QuizFarm.com

Búið að vera brjálað að gera í skólanum undanfarið og þessi önn svo sannarlega búinn að vera busy. Þrjár vikur to go og ljóst að maður verður að halda vel á spöðunum ef allt á að nást í tæka tíð.

Tók þrjú midterm í þetta skiptið. Gekk fínt í tveimur en hörmulega í því þriðja og get ekki sagt að ég hlakki til að fá það til baka. Sérstaklega þar sem mér heyrðist á öðrum að þeim hefði fundist prófið í einfaldari kantinum. Síðan eru tvö stór verkefni framundan sem þarf að klára á næstu tveimur vikum auk heimadæmanna sem eru 3 í hverri viku.

Annars hef ég ekki farið í fótbolta í viku núna þar sem ég stokkbólgnaði á hægri fætinum eftir samstuð í síðasta leik. Þetta var eitthvað fáránlegasta atvik sem ég hef orðið vitni að í fótbolta. Fékk sendingu inn fyrir og markmaðurinn kom út á móti, ég var töluvert á undan honum og pikkaði boltanum áfram og var á leiðinni framhjá honum þegar hann keyrir mig niður. Ég hendist í jörðina og byrja að pæla í því hver ætti að taka vítið. En nei nei. Heyri e-r öskur og læti fyrir aftan mig þar sem ég ligg og þegar ég sný mér loksins við sé ég að dómarinn bendir í hina áttina. Var hann þá búinn að dæma aukaspyrnu Á MIG. Enginn leikaraskapur eða þannig enda keyrði markmaðurinn mig niður. “I always protect the keeper” var hans útskýring og var það ekki til frekari viðræðu. Þetta var jafn leikur og við 2-1 undir þ.a. ég varð auðvitað brjálaður og ekki batnaði það þegar ég fann að eitthvað var að í löppinni. Allavegna, er ennþá slappur í fætinum en þetta hlýtur að fara að skána. Töpuðum leiknum 3-2 en unnum svo leik síðasta sunnudag 2-1 þ.a. við erum ennþá í toppbaráttunni.