fimmtudagur, maí 17, 2007

Skrapp á hverfisbarinn "The Spectator" með Todd um daginn og þar var skráningarlisti í borðtennismót. Auðvitað gat ég ekki stillt mig um að skrá mig í mótið en svo þegar kom að leikdeginum mætti mótspilarinn ekki. Barinn er á næsta horni þ.a. mér var svo sem slétt sama nema hvað að eigandinn vildi endilega bæta mér þetta upp og gerði mig að "Customer of the Week". Þess vegna má ég mæta með 20 vini í ókeypis forrétti og það gerist á morgun. Hellingur af fólki úr vinnunni ætlar að mæta eftir vinnu og svo á að halda á næsta horn á karaoke staðinn margfræga Ozzie's þar sem eitthvað verður gaulað.


Ég hef séð ótrúlega hluti undanfarna daga. Fyrra atvikið átti sér stað þar sem við röltum nokkur af írskum bar áleiðis á Safeco Field á hafnaboltaleik síðasta föstudag. Gengum í gegnum frekar skuggalega götu og þegar við vorum hálfnuð sáum við fáránlega sjón hinum megin við götuna. Þar voru tveir þeldökkir menn, annar standandi, hinn sitjandi á hækjum sér og ... tja þið megið fylla í eyðurnar.

Geggjað útsýni á Safeco Field

Síðan á leiðinni heim úr vinnunni í fyrradag var ég á rölti með I-podinn í botni þegar ég leit til vinstri og þar var gaur með buxurnar á hælunum að skíta. Yep, broad daylight. Mér finnst eins og ég sé að búa þessar sögur til þegar ég segi fólki frá þessu enda finnst öllum þetta ótrúlegt.

4 Ummæli:

Þann 9:19 f.h. , Blogger Hrabba sagði...

hérna ég einhvern vegin held að ég sé búin að vera of lengi í skólanum í dag ég ætla heim ....

 
Þann 4:46 e.h. , Blogger Gunnhildur sagði...

Það er eins og þú sért "customer of the week" í hverri viku þarna! Ég bíð spennt eftir því að sjá hvar þú verður það í næstu viku!

 
Þann 12:43 e.h. , Blogger G-Sus sagði...

Voru þessir svörtu menn að spila póker?

 
Þann 11:53 e.h. , Blogger 5689 sagði...

zzzzz2018.7.28
saics running shoes
ed hardy clothing
giuseppe zanotti sneakers
moncler jackets
jordans
ralph lauren outlet
polo ralph lauren
kate spade outlet online
oakley sunglasses wholesale
nike presto

 

Skrifa ummæli

<< Heim