þriðjudagur, febrúar 17, 2004

Maður er loksins farinn að sjá fyrir endann á þessari skýrslu í Reiknilegri Aflfræði. Bara skrópandi í tíma hægri vinstri til að ganga frá þessu en sem betur fer er þetta að klárast. Í rauninni ekkert búið að gerast síðan ég skrifaði síðan nema ég hef setið í tölvuverinu í VR2. Fréttir af fólki:
Kenneth skellti sér í fótbolta á mánudaginn í fyrsta skipti síðan í ágúst
Óttar sagði Tryggva söguna af því af hverju hann gengur undir nafninu Miðjan
Tryggvi fékk tölvuskjá frá mömmu Dolla
Atli mætti í vinnuna á póstinum og skemmti sér frábærlega
United dróst á móti Fulham/West Ham í bikarnum
Árshátíðaratriðið er á síðasta snúning en mun reddast

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim