sunnudagur, febrúar 15, 2004

Ljómandi gleðskapur hjá Jens í gærkvöld. Mættir voru auk gestgjafans M-ið, Grétar, Snæbjörn, Hannes og Doddi auk frúa þeirra. Grétar fór sem fyrr á kostum og átti hvern gullmolann á fætur öðrum. Toppaði kvöldið þegar það barst í tal að kunningi þeirra væri ekki mjög skynsamur þegar kæmi að peningum. Þá svaraði Grétar: "NO SHIT". Classic
Svo bara heljarinnar samkoma hjá Steinunni Völu þar sem partýið skiptist í þrennt: verkfræðinemar, vökufólk og Akureyringar. Skelfilegt veður þ.a. flestir tóku þá skynsömu ákvörðun að sleppa bænum.
Svo bara Reiknileg aflfræði í dag, morgun og hinn og vonandi skil á hinn hinn. Djöfull verður fínt að henda skýrslunni í hólf og skella sér á árshátíð.
Nielsen, Þórólfur sýndi í kvöld að hann er flestum fremri þegar kemur að notkun Microsoft Office forrita. NERD ALERT!

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim