þriðjudagur, febrúar 10, 2004

Er það merki um skólaleiða þegar maður ákveður áður en maður fer að sofa að maður verði of þreyttur um morguninn til að mæta í skólann ? Ég nenni allavegna engann veginn í skólann og ætla að hafa það gott heima í dag. Kíki kannski í dæmatíma eftir hádegi.
Við Atli og Steini fórum í pool í gær þar sem við Steini deildum fyrsta sætinu en Atli misskildi reglur leiksins og kepptist við að setja hvítu kúluna ofaní. Jú Atli, ef þetta hefði verið keppni í að setja hvítu kúluna ofan í þá hefðir þú unnið. Talandi um Kúlu, "viltu kúlu", Kúlan.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim