föstudagur, febrúar 13, 2004

Dúndurfjör í gær á ungum einleikurum með sinfó í gærkvöldi. Helga vinkona Gunnhildar systur gerði sérstaklega góða hluti. Svo kíkti maður á kosningavöku og síðan í fögnuð hjá einleikurunum. Alltof seint að sofa þ.a. maður er nú búinn að sofa af sér góðan LUK tíma í morgun.
United er búið að klúðra tímabilinu með leiknum á móti Boro. Atli er á önverðum meiði og er ég tilbúinn að skella kippu á þetta ef hann er maður. Atli hefur löngum gengið undir nafninu Atli mús þ.a. það er spurning hvort hann grípi tækifærið og losni við þetta viðurnefni fyrir fullt og allt.
Annars stefnir bara í rólega helgi því maður þarf að gera þessa djöfulsins ansys skýrslu. Basic samt að kíkja á Lost in Translation um helgina. Later

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim