laugardagur, febrúar 28, 2004

Þokkalegasti laugardagur. Við Tryggvi og Nielsen mössuðum tölulega greiningu í gær þar sem Tryggvi batt endahnútinn með T-bylt. Svo bara skálað og kíkt í bæinn í seinni kantinum. Fór frekar seint að sofa þannig að það var nánast runnið af mér. Ég er því hinn hressasti í dag, fyrir utan smá þreytu.
Gunni er svo stórtækur að hann er búinn að skella vídeó af atriðinu okkar á netið. Óskýrt en ég hugsa að fólk nái hugmyndinni. Full screen gefur "skýrustu" mynd. Atriðið
Orð götunnar er að þessi sé gamall en mér fannst hann allavegna of fyndinn:
E-n tímann átti víst að setja Davíð Oddsson á frímerki en það var snarlega hætt við vegna þess að vitað var að sjálfstæðismenn myndu lenda í mestu vandræðum með það hvora hliðina þeir ættu að sleikja

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim